Innifalið í miðaverði er tjaldstæði í Herjólfsdal.
Tjöldun á golfvellinum er einungis heimiluð frá 18:00 á fimmtudegi til klukkan 18:00 á mánudegi.
Tjaldsvæðið á Herjólfsdal er opið eins og þurfa þykir.
VIP tjaldsvæðið er í um það bil 5 mínútna göngufjarlægð frá Herjólfsdal. Svæðið er vaktað allan sólarhringinn og enginn kemst inn nema vera með VIP armband
Upplýsingar um verð má finna á tix.is og parka.is
Þegar gestir mæta á svæðið þurfa þeir að gefa sig fram við tjaldstæðavörð á staðnum til að fá afhent armband.
Á svæðinu er bannað að vera með einnota grill og glerílát.
18 ára aldurstakmark.
Fyrir nánari upplýsingar sendið póst á [email protected] eða hringið í síma 837-1300
Smelltu HÉR til að bóka á VIP tjaldsvæði
Í þjónustuhúsinu við tjaldsvæðið eru 4 salerni, 2 sturtur, þvottvél, þurrkari og snúrur auka ferðasalerna á neðra svæði. Rafmagn er til staðar fyrir tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi.
Gestum Þjóðhátíðar gefst kostur á að leigja uppsett tjöld og allan aukabúnað af samstarfsaðila okkar Rent-A-Tent. Þjónustan hjá þeim virkar í raun eins og á hóteli, tjaldið bíður þín klárt ásamt bókuðum aukabúnaði við komuna til Vestmannaeyja og þú þarft aðeins að gefa upp nafn og sýna skilríki. Í lok hátíðar yfirgefur þú tjaldið þitt og starfsmenn Rent-A-Tent sjá um allan frágang.
Tjöldin frá Rent-A-Tent eru á afgirtu og vöktuðu svæði í Herjólfsdal þar sem hægt er að hlaða síma kostnaðarlaust. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar og bóka tjöld á heimasíðunni www.rentatent.is og senda fyrirspurnir á [email protected]