- fólk farið að huga að tjöldum
Eitt af einkennum Þjóðhátíðar frá upphafi hafa verið hvítu hústjöldin. Þeim hefur verið tjaldað í röð eftir tilsettum götum sem bera nöfn er kennd eru við Vestmannaeyjar. Þessi tjöld eru samansett úr járnsúlum(sum tré) og hvítur dúkur sér saumaður ofaná súlurnar. Súlurnar hafa verið gerðar á fjölmörgum járnsmíðaverkstæðum en oftar en ekki hefur
Seglagerðin Ægir saumað dúkanna eftir málum súlanna.
Mikil örtröð myndaðist í fyrra vegna pantanna hjá Seglagerðinni og því er vissara að panta í tíma.
Styttist óðfluga í hina miklu hátíð og er Þjóðhátíðarnefnd í óðaönn að skoða hljómsveitir sem tilvaldar eru að stíga á stokk í lok júlí. Verðum við með fyrstu fréttir af þessum skemmtikröftum hér á síðunni.