Stórhljómsveitin Grafík kemur á Þjóðhátíð

 

Andrea Gylfa og Helgi Björns mæta með.

Það er þá komið á hreint að Stórhljómsveitin Grafík Kemur fram á Þjóðhátíðinni þetta árið og með Grafík koma báðir stórsöngvarar sveitarinnar hér frá fyrri árum þau Andrea Gylfa og Helgi Björns. Grafík kemur til með að halda tónleika á laugardagskvöldinu og er reiknað með að bandið stígi á stokk uppúr klukkan 22:30. Þetta verður án efa einn af hápunktum hátíðarinnar og verður gaman að sjá Helga og Andreu saman á sviðinu og hver veit nema það muni heyrast inná milli eitt og eitt Todmobile og Sólar lag.

Deila á facebook