Eins og lofað var verða viðtöl við hljómsveitarmeðlimi fyrir Þjóðhátíð hér á síðunni. Fyrstur til að ríða á vaðið er Gunnar Ólafsson, eða Gunni Óla eins og hann er kallaður. Lögðum við fyrir hann nokkrar léttar spurningar um Þjóðhátíðina og hljómsveitina sem við lítum á hérna.
Nú hafið þið komið áður á Þjóðhátíð? Er þetta alltaf jafn gaman?
Það er alltaf jafn gaman að koma og vera þarna yfir heila helgi og skemmta fólki...Þetta er einhvern vegin ólýsanleg tilfinning...örugglega eins og að eignast barn í fyrsta skipti....bara ekki hægt að lýsa því.....
Þið hafið verið með litlar breytingar á bandinu síðan þið byrjuðu, náið þið vel saman og truflar þetta ekki önnur störf ykkar?
Svona hefur bandið verið hvað lengst svo að við erum vanir þessari uppröðun....Nei nei, þetta truflar ekki neitt annað sem við erum að gera...ekkki nema kannski tilhlökkunin.....
Hvað hafði mestu áhrifin í ákvörðun ykkar að skella ykkur til Eyja í ár?
Að sjá dalinn þegar kveikt er á blysunum í brekkunni og sjá hann lýsast upp í allri sinni mynd...Það er ótrúleg sjón.....Og svo er þetta, að mér finnst, skemmtilegasta útihátíðin
Hver er eftirminnilegasta hátíðin sem þið hafið spilað á?
Ég verð að segja hátiðin 1997....Þá fengum við að vera annað aðal bandið á stóra sviðinu á móti Sálinni hans Jóns míns.....það var gaman.....
Hefur alltaf verið auðvelt að vakna alla daganna á Þjóðhátíð?
Nei....he he....ekki fyrir mig......Mér hefur ekkert fundist það leiðinlegt að sofa í gegnum árin...Ég á minn lengsta svefn á þjóðhátíð 1992.....24 tíma samfellt.....hehe........var búinn að skemmta mér vel.....
Í hverju finnst þér mesti munurinn liggja á milli Þjóðhátíðarinnar og annarra útihátiða?
Það er svo mikil hefð fyrir þessari hátíð....Hún er að mig minnir rúmlega 130 ára gömul....og geri aðrir betur......Hún er svona eins og jólin....Maður sleppir ekki jólunum eða hvað???
Eru ný lög á leiðinni fyrir Þjóðhátíð hjá bandinu?
Það verða sennilega þrjú ný lög komin út fyrir þjóðhátíð í ár og örugglega myndbönd líka....Njótið vel