Bubbi með gítarinn

 

-sunnudagskvöld fyrir varðeld

Hin ríkulega dagskrá Þjóðhátíðar Vestmannaeyja stækkar í hverri viku er nær dregur lok júlímánaðar. Skemmtidagskrá og tónlistaratriði bera þar hæst og má nefna ráðningu hljómsveitarinnar Trabant sem mun leika að lokinni flugeldasýningu laugardagskvöld líkt og hljómsveitin Mínus gerði í fyrra.

Gítarspil hefur löngum verið einkenni hátíðarinnar jafnt í tjöldum sem á stóra sviðinu og verður engin undantekning þar á. Bubbi Morthens mun spila á sunnudagskvöld fyrir varðeld líkt og KK og Maggi Eiríks gerði í fyrra. Í næstu viku verða tvö önnur tónlistaratriði gerð kunn sem og upplýstur verður gangur mála þjóðhátíðarlags 2005.

Þjóðhátíðarnefnd

Deila á facebook