Leoncie kemur á Þjóðhátíð 2005...

 

Þá er hún fundin, eftir mikla leit og er á leið á Þjóðhátíð, engin önnur en ICY SPICY LEONCIE. Leoncie mun koma fram á kvöldvökunni á föstudagskvöld og það er engin spurning að hún á eftir að trylla þjóðhátíðargesti svo um munar með söng og gleði.

Leoncie hefur undanfarin ár verið að gera góða hluti í tónlistabransanum. Síðasta plata hennar radio rapist vakti töluverða lukku og bíða áhangendur hennar spenntir eftir næstu plötu, en hún mun heita Satan city. Svo er bara að bíða og sjá hvort við munum heyra nýtt lag með Leoncie í dalnum á Þjóðhátíð.

Deila á facebook