Heilu hóparnir boða komu sína

 

Tígrarnir boða sig til Eyja

Mikil bókun á sér stað þessa daganna hjá Samskipum/Herjólfi og hefur starfsfólk vart undan. Heilu hóparnir hafa haft samband við Dalinn og fyrsti hópurinn til að senda okkur mynd og láta vita á undan sér er hópurinn Tígrarnir. Hópur sem hefur verið lengi á Þjóðhátíð og lætur sig ekki vanta, hvorki í búningafjörið né stemminguna. Einnig hefur heyrst af Fyrirmyndabílstjórum og Mafíu Vestmannaeyja sem eru með mikið "come-back". Verður gríðarlega spennandi að fylgjast með þessum hópum koma inn í dalinn um kl 21:00 á föstudagskvöldið.

Saumastofur um allt suðurlandið ásamt mikið á höfuðborgarsvæðinu bjóða upp á sérsaumun og hóparnir flykkjast nú sem hraðast til að panta saumun. Munum við hér á www.dalurinn.is reyna hvað við getum til að fylgjast með gangi mála í þessum hópa-búningagerð og viljum við endilega fá frá hópunum myndir og linka ef við á.

Deila á facebook