Lokaútkall fyrir Herjólf!!!

 

-Síðasti dagur í dag til að greiða bókaða miða

Nú er að hrökkva eða stökkva! Í dag samkvæmt heimildum Herjólfs skal greiða bókaða miða fyrir ferðir Herjólfs yfir Þjóðhátíð. Strax á mánudagsmorgun verða seldir þeir miðar sem eru ógreiddir svo eftir miklu er að slæjast.

Bókanir hafa verið miklar og í næstu viku verður hægt að gefa upp hversu mikið af farþegum hefur bókað og greitt í ár samanburði við árið þar á undan.

Deila á facebook