Allt að seljast upp í Herjólf

 

í dag yfir 1.000 miðar seldir!!!!

Hjá afgreiðslu Herjólfs fengust þær fréttir að alger sprengja hefði verið í sölu á ógreiddum pöntunum yfir Þjóðhátíð. Yfir 1.000 miðar seldir síðan kl 8:00 í morgun og uppselt er í ferðir Herjólfs mánudagsmorgun 1.ágúst og seinni partinn sama dag.

Á bilinu 50-100 miðar eru lausir á fimmtudag og föstudag svo nú þurfa menn að vera fljótir til. Gríðarleg örtröð hefur verið í Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn og afgreiðslu Samskipa í Reykjavík síðan í morgun. Enn er laust í kvöld/nætur ferð aðfararnótt þriðjudagsins 2.ágúst.

Margt bendir til aukinnar sölu með Herjólfi og þá um leið aukning gesta á Þjóðhátíðina að sama skapi. Í lok vikunnar er von á fréttum hjá flugfélögunum með bókanir.

Deila á facebook