Samkvæmt nýjustu heimildum Herjólfs þá er núna orðið uppselt í allar ferðir Herjólfs á mánudaginn 1.ágúst (þá er meðtalin næturferð aðfararnótt þriðjudags 2.ágúst). Einnig er uppselt í fyrri ferð Herjólfs föstudaginn 29.júlí frá Þorlákshöfn.
Mikið hefur verið hringt á afgreiðslu Herjólfs í Vestmannaeyjum og vildi starfsfólk koma þessum skilaboðum áleiðis til Þjóðhátíðargesta. Síminn í afgreiðslu Herjólfs er 481-2800