Stóra sviðið komið inn í dal

 

Loksins loksins heyrist á kaffistofum um allan bæ. Hinn undirliggjandi fjörkippur stigmagnast og fólk farið að auka ferðir sínar inn í dal til að skoða gang mála í uppsetningu mannvirkja. Stóra sviðið er komið inní dal ásamt litla pallinum. Myndir koma á morgun.

Kringum næstu helgi verður veitingatjaldið sett upp ásamt því sem afgangur af mannvirkjum dalsins koma á sinn stað. Málningavinna fer af stað og rafmagnsvinna einnig. Brennupeyjarnir eru enn á unglingaárum og því ekki vaknaðir ennþá. Flugeldarnir eru á leið til Eyja en það er Björgunarfélagið sem hefur þrumað þeim í loftið undanfarin ár.

Hinir ýmsu hópar eru í þessum töluðu orðum að sauma sína búninga og ríkir mikil eftirvænting meðal gesta að sjá herlegheitin. Verðlaunaafhending fyrir flottustu búningana verður á föstudagskvöldinu.

Deila á facebook