Nú er komið að því sem mjög margir hafa verið að bíða eftir. Það er Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 2005. Lagið heitir Með þér og semja þeir lagið, Hreimur Heimisson og Vignir Snær Vigfússon, texta sá Hreimur um. Hvar getið þið hlustað á lagið? Jú á öllum helstu útvarpsstöðvum landsins strax í fyrramálið!!!
Auk þess sem hægt verður að hlýða það mjög fljótlega hér á heimasíðu Þjóðhátíðarnefndar www.dalurinn.is
Hér kemur texti lagsins:
Með þér
Niðurtalningin er hafin hér.
Stundarglasið hefur gefið mér byr.
Úr lofti eða láði förum vér
og við göngum inn um gleðinnar dyr.
Viðlagið
Ég finn frið inn í mér.
Á þjóðhátíð ég upplifi lífið með þér.
Ég finn frið inn í mér.
Á þjóðhátíð ég upplifi lífið með þér.
Nú við löbbum inn í ljósadýrð
og leiðum saman okkar hesta í kvöld.
Úti verður okkar ævintýr,
því allir vita að hér er gleðin við völd.
Viðlagið
Ég finn frið inn í mér.
Á þjóðhátíð ég upplifi lífið með þér.
Ég finn frið inn í mér.
Á þjóðhátíð ég upplifi lífið með þér.
Hjartað slær ótt, ég er í sælufjötrum.
Ég bíð góða nótt
og kyssi þig...