::Með þér::
Undir linkinum Þjóðhátíðarlög hérna vinstra megin getið þið hlýtt á Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 2005, Með þér. Lagið er eftir þá Hreim Heimisson og Vigni Snær Vigfússon en textann orti Hreimur. Textann má finna í annari frétt hér að neðan og er von á gítargripum fljótlega á síðuna.
Hér kemur texti lagsins:
Með þér
Niðurtalningin er hafin hér.
Stundarglasið hefur gefið mér byr.
Úr lofti eða láði förum vér
og við göngum inn um gleðinnar dyr.
Viðlagið
Ég finn frið inn í mér.
Á þjóðhátíð ég upplifi lífið með þér.
Ég finn frið inn í mér.
Á þjóðhátíð ég upplifi lífið með þér.
Nú við löbbum inn í ljósadýrð
og leiðum saman okkar hesta í kvöld.
Úti verður okkar ævintýr,
því allir vita að hér er gleðin við völd.
Viðlagið
Ég finn frið inn í mér.
Á þjóðhátíð ég upplifi lífið með þér.
Ég finn frið inn í mér.
Á þjóðhátíð ég upplifi lífið með þér.
Hjartað slær ótt, ég er í sælufjötrum.
Ég bíð góða nótt
og kyssi þig...