::Mikið bókað síðustu daga::

 

-Flugfélag Vestmannaeyja hefur bókað um 450 manns og fjölgar hratt

Gríðarleg aukning hefur verið hjá Flugfélagi Vestmannaeyja í bókun á flugi yfir Þjóðhátíð. Veðurspáin hefur mikið að segja og er bókað mjög grimmt síðustu vikuna þegar spáin er orðin klár. Vinsælasti tíminn hjá Flugfélaginu er milli 17:00 og 21:00 á föstudeginum og voru einungis örfá sæti laus þegar fréttaritari hringdi.

Næg sæti eru ennþá laus á öðrum tímum og má geta þess að Flugfélagið hefur tekið í notkun 9 sæta vél, sem mun auðvelda fólksflutning á þessum annasamasta tíma ársins. Ný flugstöð verður tekin í notkun næstkomandi þriðjudag á Bakkaflugvelli og mun hún koma sér gríðarlega vel fyrir Þjóðhátíðargesti um aðra helgi.

Verð til og frá Eyjum er 8.000,- kr og ferð aðra leiðina er á 4.500,- kr. Hvetur flugfélagið fólk til að bóka báðar leiðir en breytingargjald er 500,- kr ef gera þarf breytingu á bókun viðkomandi.

Síminn hjá Flugfélagi Vestmannaeyja er 481-3255

Deila á facebook