-verður farið í hús um helgina
Laugardag og sunnudag mun vera farið í hús og selt hið glæsilega rit, Þjóðhátíðarblaðið. Er það einkar glæsilegt í ár og hefur að geyma gríðarlegan fjölda ljósmynda sem einkennt hefur blaðið hvert ár. Mun 4.flokkur kvenna í knattspyrnu ganga vasklega til verks líkt og þær hafa gert á knattspyrnuvellinum undanfarin ár. Verð blaðsins er 500,- kr sem er 200 kr ódýrara en í fyrra. Nú er um að gera að skella sér á eintak og koma sér í rétta gírinn fyrir hátíðina sem er eftir einungis 7 daga.
Þeir sem hafa áhuga á að selja blaðið í aukagötur, geta haft samband við Birgi í síma 867-0068.
Sölulaun eru 100 kr. fyrir hvert blað sem selt er.