Árni Johnsen hitaði upp fyrir Þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum og hélt einskonar brekkusöng fyrir gesti í Kringlunni. Árni söng þar nokkur þekkt Eyjalög og önnur lög sem hann er vanur að flytja í brekkusöngnum á Þjóðhátíð og voru viðtökur viðstaddra góðar.
mbl.is greindi frá.