Hreimur Örn Heimisson, tónlistarmaður, er annar af höfundum þjóðhátíðarlagsins í ár. Lagið, sem Hreimur samdi í félagi við Vigni Snæ Vigfússyni, gítarleikara og aðallagahöfund Írafárs, heitir með þér Með þér. Óhætt er að segja að lagið hafi fallið vel í kram þjóðhátíðarunnenda sem margir hverjir hafa verið fljótir að grípa lagið á lofti og syngja. Lagið í ár er það fjórða sem Hreimur semur fyrir þjóðhátíð í Eyjum og má því segja að hann sé orðinn nokkuð sjóaður í faginu. Perlur eins og Lífið er yndislegt og Vinátta hafa komið út smiðju þessa frábæra tónlistarmanns og má segja að Hreimur sé búinn að skipa sér stóran sess í Þjóðhátíðarsögunni. Þjóðhátíðarblaðið hafði upp á Hreim og tók hann í smá yfirheyrslu um þjóðhátíðarlagið í ár og hátíðina miklu í Herjólfsdal.
Hvernig var að vinna lagið með Vigni Snæ í Írafári?
Það var tær snilld að vinna með Vigni sem er mikill snillingur og fagmaður fram í fingurgóma í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Það er heldur ekki á hverjum degi sem maður setur saman lag með Eurovision-lagahöfundi!
Nú er þetta í fjórða skiptið sem þú kemur að samningu þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja. Er þetta alltaf jafn gaman?
Það myndi ég segja. Að vinna að þjóðhátíðarlagi er svolítið öðruvísi en að vinna venjuleg dægurlög, en maður er fljótur að sjá hvort vel hafi tekist til þegar maður situr í brekkunni og hlustar á fólkið. En af mörgum lögum sem ég hef samið í gegnum tíðina skipa þjóðhátíðarlögin alltaf sérstakan sess hjá mér.
Má ekki fara að flokka þig með meisturum á borð við Oddgeir Kristjánsson ef þú heldur áfram á þessari braut?
Nei, alls ekki. Aðeins tíminn getur leitt slíkt í ljós. Ég ber mikla virðingu fyrir Oddgeir og lögunum hans sem eru mörg hver algerar perlur og nægir þar að nefna lög eins og Ég veit þú kemur og Ágústnótt. En hver veit, kannski á maður eftir að vera svo heppinn að detta niður á lag og texta síðar meira sem á eftir að falla fólki vel í geð og lifa.
Nú hefur þú oft komið á þjóðhátíð. Hefur ekki eitthvað skemmtilegt komið uppá í dalnum?
Ég hef komið á þjóðhátíð síðan 1997 og alltaf haft gaman að því að sækja Vestmanneyjar heim. Á þeirri þjóðhátíð má segja að hljómsveitin mín, Land og synir, hafi byrjað formlega og því á hljómsveitin, sem reyndar er í fríi núna, átta ára afmæli um verslunarmannahelgina. Ætli eftirminnilegasta þjóðhátíðin hingað til sé ekki þegar ég samdi Lífið er yndislegt árið 2001. Lagið fór vel í þjóðhátíðargesti og lifir góðu lífi. Síðan var veðrið þessa þjóðhátíð alger snilld, brakandi sól alla helgina og mikil stemning í Dalnum.
Hvernig myndir þú lýsa þjóðhátíðarlaginu í ár?
Lagið er einfalt og þægilegt að læra það. Ég veit að textinn er ekkert sérstaklega djúpur, en hann þarf ekkert endilega að vera það. Mér finnst að hann eigi bara lýsa þessari ótrúlegu upplifun sem þjóðhátíðin sannarlega er, eins og segir í textanum: Niðurtalningin er hafin... Stundum fjallar maður frekar um augnablikið sjálft frekar en umgjörð og landslag. En ég vona svo sannarlega að lagið fari vel í þjóðhátíðargesti og stemning myndist þegar það er kyrjað í hvítu tjöldunum og brekkunni.
- Viðtalið er hægt að lesa í heild sinni í Þjóðhátíðarblaðinu sem fæst á eftirtöldum stöðum: Vöruvali, Klettinum, Flugkaffi, Bókabúðinni, Tvistinum og Skýlinu.