Foreldrar og sölubörn athugið - Þjóðhátíðarblaðið til sölu!

 

Á morgun, fimmtudag, geta duglegir krakkar fengið Þjóðhátíðarblaðið til sölu. Af hverju seldu blaði fá allir krakkar 100 krónur. Það ætti því að vera léttur leikur að ná sér í góðan vasapening fyrir þjóðhátíðina með því að selja Þjóðhátíðarblaðið.

Hægt verður að nálgast blöð í Barnaskólanum í hádeginu á morgun, fimmtudag, eða þá með því að hringja í Skapta Örn í síma 899-2200 eða Birgi í síma 867-0068.

Þjóðhátíðarblaðið í ár er að vanda glæsilegt og uppfullt af skemmtilegu efni. Meðal efnis eru viðtöl við Hreim höfund þjóðhátíðarlagsins, Birki Kristinsson, knattspyrnukappa, Egil Ólafsson, stórsöngvara, Sigurgeir Jónasson, ljósmyndara, og síðan eru Fyrirmyndarbílstjórar teknir tali. Þá eru í blaðinu áhugaverðar greinar, m.a. eftir Árna Johnsen og Engeyjarfrændur. Síðast en ekki síst er blaðið stútfullt af þjóðhátíðarmyndum.

Deila á facebook