Í Þjóðhátíðarblaðinu í ár eru ýmsir þekktir eyjamenn teknir tali og spurðir stuttra spurninga um þjóðhátíð. Allt er þetta í léttum dúr og í takt við þjóðhátíðina.
Hér gefur að líta smá sýnishorn af viðtölunum ásamt myndum af viðkomandi. Njótið vel!

Guðlaugur Baldursson, þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu.
Við hverju býstu á þinni fyrstu Þjóðhátíð?
Glaum og gleði í Herjólfsdal.

Pétur Óskar Sigurðsson, framherji ÍBV.
Á að skora á Þjóðhátíðinni?
Hva, er leikur þá?
Guðný Hrefna Einarsdóttir, húsmóðir í Herjólfsdal.
Hvað verður á boðstólunum í hústjaldinu?
Rjómatertur og brauðtertur á föstudeginum. Svo verða flatkökur, samlokur, muffins, lagkökur, lundi ofl. alla hátíðina.
Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV og Hildibrandur.
Kemur Johnseninn með þyrlu í brekkusönginn í ár?
Árni hefur aldrei komið á Þjóðhátíð í þyrlu, því miður.
Hvor er skemmtilegri á Þjóðhátíð, Páll Scheving eða Jóhann Pétursson?
Ég. Þú spyrð eins og fávís kona!

Viktor Ragnarsson, bassaleikari stórhljómsveitarinnar Dans á rósum og hárskeri.
Verður dansað uppi á dekki á litla pallinum?
Já, í boði Magga Braga. á dekkjaverkstæðinu.
Verður Jamaíka veður á Þjóðhátíðinni 2005?
Veit ekki með það en það verður að minnsta kosti jamaíka fílíngur í okkur í Dans á Rósum.
Halldór Sveinsson, lögreglumaður og lundaveiðimaður.
Verður ekki allt undir kontról í Dalnum?
Allt undir kontról á Þjóðhátíð.
Jóhann Pétursson, formaður ÍBV-íþróttafélags og Myllustjóri.
Hvernig gengur að semja setningarræðu Þjóðhátíðarinnar?
Hún er enn inní hausnum á mér. Ég á hins vegar von á ræðan á setningunni muni marka tímamót í Þjóðhátíðarhaldinu, líkt og lag Oddgeirs og Ása í Bæ, Ég veit þú kemur, og glæsilegasta mannvirki í Dalnum, Myllan, gerðu á sínum tíma. Þannig að ég hvet fólk til að fjölmenna í Dalinn þegar ræðan verður flutt.
Hvor er skemmtilegri á Þjóðhátíð, Jóhann Pétursson eða Páll Scheving?
Ja, ég lifi allavega lengur.
Gaui í Gíslholti, listamaður og Hólmfríður, húsmóðir. Bæði eru þau mikið Þjóðhátíðarfólk og hafa haldið úti mikilli kjötsúpuveislu til marga ára á Þjóðhátíð.
Er byrjað að skipuleggja kjötsúpuveisluna á Túngötunni á laugardegi Þjóðhátíðarinnar?
Niðurtalningin er löngu hafin. Ég veit til þess að Jói Pé. og Halli Hannesar eru löngu farnir að undirbúa sig og það má því búast við mikilli þjóðhátíðar- og kjötsúpustemningu á Túngötunni í ár, líkt og reyndar alltaf áður.
Verður bætt einhverju nýju útí súpuna þetta árið?
Jói Pé. bað um að sett yrði meira hass í súpuna og ég geri það örugglega fyrir hann.
Viðar Einarsson, mjölviktarmaður í FES-inu og uppistandari.
Hverjum er skemmtilegast að segja brandara á Þjóðhátíð?
Ég veit það ekki. Það er mjög gaman að segja brandara í góðra vina hópi þegar brandararnir lukkast vel. En það verða að vera réttar aðstæður. Maður segir ekki brandara hvar sem er og maður segir ekki brandara hvenær sem er. Það verður helst að vera fullorðið fólk, helst ekki börn því, þau eru alltaf að tala saman og trufla. Allir verða að þegja og allir að hlusta. Það verða að vera réttar aðstæður.
Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir, fegurðardrottning og Þjóðhátíðarpæja.
Verður þú í búning á Þjóðhátíðinni?
Já, við verðum nokkur saman í búningum. Að sjálfsögðu munum við bera af hvað glæsilega búninga varðar.
Sigurjón Þorkelsson, leigubílsstjóri og skákmeistari Vestmanneyja til margra ára.
Hvað á að keyra mörgum á Þjóðhátíðinni?
Eins mörgum og ég get, helst sætu stelpunum.
Bragi Steingrímsson, óumdeildur verndari glæsilegasta mannvirkis í Dalnum, Myllunnar, og dekkjamógúll.
Réð Jói Pé. ekki við Mylluna í fyrra?
Nei, en eins og menn vita þá fauk Myllan og fór í rúst í fyrra þegar Jói tók við henni. Eftir þetta tjón gafst Jói upp og leitaði til gamla Myllumeistarans (mín) og ég brást að sjálfsögðu fljótt við og hef undanfarið verið að laga Mylluna ásamt afabarninu og nafna mínum Braga Magg. Þannig að Myllan mun ná sínum fyrri glæsileika undir minni stjórn, eftir vægast sagt döpur ár undir stjórn Jóa Pé.