-mikið af fólki nú þegar komið til Eyja
Við hinar ýmsu athafnir í gær þar sem m.a. var vígð Myllan og Vitinn, þá kom í ljós gríðarlegur fjöldi fólks sem nú þegar var komið til Eyja. Á þriðja þúsund manns eru taldir vera komnir til Eyja og fer þeim ört fjölgandi. Um 18 ferðir eru farnar með Landsflugi og Herjólfur ætlar að skutla um 1.500 manns á stærstu útihátíð landsins.
Álíka sögur er að frétta af Flugfélagi Vestmannaeyja en þeir munu ferja nokkur hundruð manns í dag milli Bakka og Eyja.
Húkkaraballið fór fram í gær við mikinn fögnuð nærstaddra en haft var eftir einum gestanna: "ég kom í gær með Herjólfi og ætlaði bara að chilla inní dal en mér var bent á Húkkaraballið og það voru allir að fara þangað, er núna á leið inní dal að tjalda" sagði glaðbeittur Þjóðhátíðargestur við fréttaritara þegar hann var á leið til vinnu í morgun.