Fyrsti dagurinn búinn, tveir eftir

 

-gríðarleg stemning og kvöldið tókst vel upp

Föstudagskvöldið fór vel fram við fögnuð fjölmargra þjóðhátíðargesta í Herjólfsdal. Brennan tókst vel upp og leyfum við nokkrum myndum að fylgja með hérna inn.

Barnaskemmtunin tókst vel upp með Brúðubílinn fremstan í flokki ásamt söngvakeppni barnanna. Einnig vann Þotuliði búningakeppnina með yfirburðum og áttu stórglæsilega innkomu í dalinn.

Mikill fjöldi kom í blíðskaparveðri til að sjá setningu hátíðarinnar.

Fólk var prúðbúið og mætti með börn sín til að njóta veðurblíðunnar sem var mjög mikil og góð þrátt fyrir veðurspár.

Brúðubíllinn var mættur og skemmti krökkum við mikinn fögnuð. Unga kynslóðin settist niður og fylgdist með af athygli á brúðurnar tala og skemmta.

Brennan ákaflega fögur og mikill hiti kom frá henni sem lýsti upp dalinn að miðnætti í gær.

Stemningin var ekki minni í brekkunni þar sem unga fólkið safnaðist saman með þeim eldri og hlýddu á kvöldskemmtun.

Deila á facebook