-flug gengur brösulega á Bakkaflugvelli en aðrar samgöngur á áætlun
Ófært hefur verið meginhluta dags á Bakkaflugvöll og Múlakot en flug hefur verið óbreytt á Reykjavík. Herjólfur gengur sinn vanagang og er samkvæmt okkar heimildum á áætlun. Fer hann næturferð í nótt og fer hann kl 23 frá Eyjum.
Gríðarleg stemning var í brekkunni í gærkvöldi og Árni Johnsen söng fyrir tug þúsund manna við varðeld og 131 blys tendruð sem tákn um fjölda Þjóðhátíða sem haldnar hafa verið.
Óhætt er að segja að gæsahúð hafi komið upp þegar þjóðsöngur landsins var sunginn kl 23:58 og öll brekkan tók undir, á slaginu 0:00 byrjaði stórglæsileg flugeldasýning hjá Björgunarfélagi Vm. og strax þar á eftir söng brekkan "Lífið er yndislegt" í einum kór.
Frábært veður var í gærkvöldi og í nótt sem gerði stemninguna enn betri og ungir sem aldnir náðu að skemmta sér á litla og stóra sviðinu til að verða 09 í morgun og einhverjir héldu áfram í hvítu tjöldunum.