-byrjað er að taka niður mannvirkin í dalnum
Nú þegar hátíðinni er lokið er farið að huga að frágangi helstu mannvirkja í dalnum. Fjölmargir gestir komnir heim til sín og þegar byrjaðir að rifja upp hin ýmsu atvik sem stóðu upp úr á hátíðinni. Gríðarlega góð aðsókn var í ár og má áætla að flugsamgöngur hafi haft þar úrslitaáhrif. Hægt var að fljúga óáreitt allan fimmtudaginn og gekk því vel að flytja gesti til Eyja sem og á föstudeginum.
Mánudagurinn var gestum erfiður með vaxandi vind og þokuslæðingi með ströndinni. Féll niður flug á Bakkaflugvöll frá hádegi en það hófst að nýju á þriðjudagsmorgni.