-gestirnir til fyrirmyndar
Þegar litið er til baka þá mun þessi Þjóðhátíð vera í fersku minni fólks um ókomna tíð. Hlutir eins og Leoncie, Raggi Bjarna, Bubbi Mortens, Árni Johnsen, Helgi Björns og Andrea, Hreimur og margir fleiri settu mikinn svip á hátíðina og eiga margir eftir að rifja upp skemmtilegar minningar í kringum þessa miklu hátíð.
Viljum við hér á dalurinn.is þakka öllum sem lögðu leið sína hingað inn til að afla frétta, upplýsinga og tíðinda af hátíðinni sem og þeim fjölmörgu gestum sem létu vita af sér með því að skrá í gestabókina.