Löggæslukostnaður

 

-umræða sem aldrei deyr

Undanfarin ár hefur gríðarleg umræða verið um þann löggæslukostnað sem Þjóðhátíð Vestmannaeyja þarf að bera vegna hátíðarinnar. Þessi kostnaður hleypur á miljónum og bera menn furðu við slíkri löginnheimtu þar sem gríðarleg gæsla er inn á hátíðarsvæðinu af mótshöldurum ásamt lækni og annarri áfallaþjónustu.

Björn Bjarnason hefur ekki komist vel undan þessari umræðu þar sem hann bar því saman við að þeir sem njóta þjónustunnar þurfa að borga fyrir hana. Átti hann við að ef Jóhannes í Bónus fer ekki á Þjóðhátíð þá á hann ekki að þurfa að borga fyrir þessa þjónustu heldur partýbína sem mætti á svæðið og borgaði aðgangseyrir.

Ákaflega furðuleg rök sem standast engan vegin hjá þessum ágæta ráðherra.

Miðað við þessi rök þá á fólk að vera á öllum stöðum landsins á öllum tíma sólarhrings til að geta nýtt þá aura sem þeir hafa lagt til löggæslu með því að borga skatta og gjöld. Alger fásinna að bera þetta tvennt saman og með ólíkindum að ráðherra hafi stigið á tærnar sínar með slíkum hætti.

Sem dæmi má nefna að ef rökin ættu að vera "algild" þá hefur fólk á menninganótt borgað sig inn á svæðið óformlega með því að greiða útsvar til Reykjavíkurborgar og þá óformlega greitt fyrir skemmtunina. Með því ætti Rvk borg að greiða fyrir umframlöggæslukostnað sem myndast og miðað við fréttir af hátíðinni þá væri nær að láta Rvk borg greiða þennan kostnað en að rukka Íþróttafélag sem sinnir æskulýðsstarfi allt árið um kring.

*athugið að þetta er ekki skoðun Þjóðhátíðarnefndar heldur fréttaritara.

Deila á facebook