Allar upplýsingar koma inná dalurinn.is
Það styttist óðum í næstu Þjóðhátíð og er þó nokkuð síðan að þjóðhátíðarnefnd byrjaði að starfa og innan tíðar mun nefndin fara að greina frá hljómsveitum og öðrum skemmtikröftum sem koma til með að stíga á stokk um næstu verslunarmannahelgi í Herjólfsdal.
Þjóðhátíðin í ár hefst föstudaginn 4. Ágúst og er rétt að benda þjóðhátíðarförum á að fara að huga að bókunum. Við hér á dalurinn.is komum svo til með að dæla upplýsingum inná síðuna er nær dregur.