Þjóðhátíðarnefnd hefur gengið frá samningum við stórhljómsveitirnar Í svörtum fötum og Á móti sól um að leika á næstu Þjóðhátíð. Á móti sól verður á brekkusviðinu öll þrjú kvöldin og Í svörtum fötum munu troða upp laugardags- og sunnudags- kvöld.
Enn á eftir að ráða þriðju hljómsveitina til að troða upp á föstudagskvöldinu, sem og á húkkaraballinu.