Panta snemma!

 

-sjaldan of oft kveðin vísa

Á hverju ári fara þeir sem öruggir eru með ferð sína til Eyja, að panta gistirými ef þeir vilja ekki vera í tjald-fílingnum.

Gistirými er upppantað á sumum stöðum, strax daganna eftir Þjóðhátíð. Ástæðan er einföld: Fólk var svo ánægt að það tryggði sig fyrir Þjóðhátíðina að ári.

Hvetur því Þjóðhátíðarnefnd fólk til að huga snemma að þessum málum til að þeir sem vilja komast í gistirými og eru örugg um mætingu á Þjóðhátíð, fái næturstað.

Deila á facebook