Þá er komið á hreint hverjir verða á tónleikunum á laugardagskvöld á Þjóðhátíð 2006. Það eru snillingarnir í Todmobile sem koma til með að halda uppi stuðinu á brekkusviðinu frá klukkan tíu og alveg fram að flugeldasýningu. Andrea Gylfa er að koma annað árið í röð á Þjóðhátíð, hún var jú með Grafík á tónleikunum í fyrra og gerði allt vitlaust.
Enn á töluvert eftir að bætast í glæsta dagskrá Þjóðhátíðar og innan skamms munum við greina frá hver þriðja "ball" hljómsveitin verður. Það er því um að gera fyrir þá sem ekki eru enn búnir að tryggja sér far til Eyja að drífa í því.