99 Dagar í Þjóðhátíð

 

Núna eru aðeins 99 dagar í Þjóðhátíð Vestmannaeyja og alveg ljóst að það er kominn fiðringur í mann. Það er búið að ráða Todmobile, Í svörtum fötum og Á móti sól á stóra sviðið og ekki þarf að bíða lengi eftir fréttum af litla sviðinu eða fleiri skemmtikröftum.

Fólk verður að fara panta líka en það er einmitt gott að klára þau mál svo maður siti ekki eftir í Þorlákshöfn með sárt ennið. Hægt er að panta á netinu á heimasíðu Herjólfs og upplýsingar um flug frá Bakka er hægt að finna hér.

Við minnum svo fólk á að kíkja reglulega hingað inn á Dalurinn.is því að fréttir af Þjóðhátíð birtast hérna fyrst.

Gleðilegt sumar

Deila á facebook