Fleiri en eitt skip yfir Þjóðhátíðina?

 

Umræður eru milli samgönguráðherra og Lúðvík Bergvinssonar bæjarfulltrúa um möguleikann á aukaskipi milli lands og Eyja yfir Þjóðhátíðina. Ekki er vitað hvernig þær viðræður standa en víst þykir að ef annað skip kemur í fólksflutninga mun fjöldinn aukast um leið. Helsta ástæðan er kannski sú að margir velja ódýrasta fararskjótann til Eyja og því yfirleitt uppselt í Herjólf góðan tíma fyrir hátíðina.

Skemmtiatriði og fleira er í vinnslu hjá Þjóðhátíðarnefnd og má vænta fleiri frétta næstu vikur.

Deila á facebook