Hugmyndir fyrir næstu Þjóðhátíð

 

-komið með tillögur að breytingum

Þjóðhátíð Vestmannaeyja hefur verið haldin lengur og oftar en nokkur önnur útihátíð(tel ekki grillveislur í görðum með) og hefur það verið metnaður Þjóðhátíðanefndar að gera hátíðina betri á hverju ári með aðstoð fjölmargra sjálfboðaliða á öllum aldri.

Nú ætlar Dalurinn að leita eftir hugmyndum og tillögum frá gestunum sjálfum til þess að gera hátíðina enn betri í ár en hún var í fyrra. Til þess að svo megi vera getur þú lesandi góður, sent inn þínar hugmyndir sem sendar verða áfram til Þjóðhátíðarnefndar.

Bestu 3 tillögurnar verða svo birtar hér á heimasíðu Þjóðhátíðarinnar.

Sendu tölvupóst núna!

Deila á facebook