8500- í forsölu, 9900- við hliðið
Þá er verðið á Þjóðhátíðina 2006 komið á hreint og hefur þjóðhátíðarnefnd ákveðið að hafa óbreytt verð í dalinn í ár. Miðinn í forsölu kostar 8500 kr og fer forsala fram á ESSO-stöðvum land allt. Forsalan hefst í byrjun Júlí og verður hún nánar auglýst síðar hér á síðunni. Verðið við hliðið verður einnig óbreytt frá í fyrra eða 9900 kr.