Það verður rokkað út í eitt á Þjóðhátíð ´06

 

Jet black Joe, Dr. Spook og Hoffman sjá um ROKKIÐ

Þjóðhátíðarnefnd er sönn ánægja að kynna rokkþrennu Þjóðhátíðar 2006. Böndin sem koma til með að rokka hátíðina upp í ár eru ekki af verri endanum. Eftir brennu á föstudeginum stígur hljómsveitin Dr Spock á svið og munu þeir félagar rokka dalinn upp.

Eftir mögnuðustu flugeldasýningu í Evrópu, kemur fram á sviðið rokkbandið Jet black Joe sem ekki þarf að kynna nánar. Sunnudagurinn fer svo undir rokkarana í Hoffman, og munu þeir koma fram fljótlega eftir miðnætti á sunnudeginum. Það verður semsagt rokkað á Þjóðhátíð 2006.

Deila á facebook