-þarf að vera greitt fyrir 1.júlí
Dalurinn.is hefur á hverju ári fylgst gríðarlega vel með gangi mála og mun gera það áfram. Haft var samband nú rétt í þessu við söluskrifstofu Herjólfs, Landsflugs og Flugfélags Vestmannaeyja.
Herjólfur
Uppselt er fyrir farþega bæði í ferðir til Eyja á fimmtudeginum kl 12:00 og á föstudeginum kl 12:00 og uppselt í allar ferðir á mánudeginum frá Eyjum. Athuga ber þó að þeir sem ekki greiða pantanir fyrir 1.júlí missa pöntunina og eftir 10.júlí geta þeir sem ekki hafa pantað, hringt og reynt að fá miða sem ekki voru greiddir í tíma. Samkvæmt samtölum við söluskrifstofuna þá er það öðruvísi í ár að mun fleiri hafa greitt pantanir sínar í ár en áður fyrr.
Flugfélag Vestmannaeyja
Miklar fyrirspurnir hafa borist flugfélaginu um flug milli Bakkaflugvallar og Eyja yfir Þjóðhátíðina en þeir munu hefja bókanir eftir mánaðarmótin. Verð fékkst ekki uppgefið en væntanlega skýrist það í upphafi næstu viku.
Landsflug
Samkvæmt "Braga á fluginu" eins og hann er kallaður í Eyjum, þá hefur endanlegt Þjóðhátíðarplan ekki verið sett hjá Landsflugi en það mun vera fljótlega. Undan farin ár hefur Landsflug boðið mjög hagstæð kjör á flugi og mikill fjöldi valið beint flug frá Reykjavík til Eyja þar sem Flugfélag Íslands hefur lánað flugvélar til Landsflugs til að anna eftirspurn.