Verða einnig á húkkaraballinu
Þá er endanlega komið á hreint hverjir verða á Húkkaranum og á stóra pallinum á föstudeginum á Þjóðhátíð í ár. Það er stórhljómsveitin Stuðmenn með Birgittu haukdal innanborðs. Upphaflega stóð til að Sóldögg kæmi til með að troða upp á þessum tíma, en samningar náðust því miður ekki.
Það er því ljóst að hljómsveitapakkinn í ár er gríðarlega öflugur, því ásamt Stuðmönnum munu Todmobile, Í Svörtum fötum, Á móti sól, Jet black joe, Dr. Spook og Hoffman troða upp á stóra pallinum í ár. Einnig er verið að leggja loka hönd á kvölddagskrána og verður hún að venju glæsileg. Það er því um að gera fyrir þá sem ekki eru búnir að panta sér far til Eyja að drífa í því.