-Siggi "majónes" Braga fer fyrir hópi tuðrukastara
Það verður sjaldan sagt að brennan sé ekki einn af hápunktum Þjóðhátíðarinnar. Þegar klukkan slær 0:00 á miðnætti föstudags hleypur vanur brennuvargur með kyndilinn upp brekkuna og tendrar timbrið.
Handknattleiksdeild ÍBV sér um að safna í brennur og fara með hamförum í söfnun ár hvert enda hefðin sterk fyrir því. Allt frá tannstönglum upp í húsþök verða fyrir valinu svo það er vissara að vera með naglfast þakið í lok júlí mánaðar ef það á ekki að enda inn í Herjólfsdal. En að öllu gríni slepptu munu þeir piltar fara og þiggja þann efnivið sem þeim stendur til boða. Nafn brennukóngs sem og tölfræðilegar upplýsingar um stærðir brennunar undanfarin ár koma hugsanlega innan skamms.