„Það að vera brennumaður er ávísun á frægð“

 

- segir Sigurður Bragason fyrirliði brennumanna

Brennan á Fjósakletti hefur löngum verið eitt af aðaleinkennum Þjóðhátíðarinnar, en á föstudegi hátíðarinnar kveikir brennukóngur hátíðarinnar, Finnbogi Gunnarsson, í glæsilegri og tignarlegri brennunni. Það sem færri vita er að á bak við slíka brennu liggur mikil vinna og erfiði, en vikurnar fyrir Þjóhátíð hafa handboltastrákarnir okkar í ÍBV unnið baki brotnu við að hlaða brennuna.

Dalurinn.is heyrði í Sigurði Bragasyni, fyrirliða brennujaxlanna eins og þeir kjósa að kalla sig, fyrr í dag og spurði hann út í brennuna í ár.

Hvenær byrjuðu þið að vinna í brennunni?

Við byrjum oftast að njósna í desember, þ.e.a.s. hverjir eru kærulausir að skilja eftir bretti úti o.s.frv. Svo förum við á stúfana um mánaðarmótin júní/júlí og fáum bretti „lánuð“. Við reynum svo að vera búnir að stafla og hafa brennuna klára á þriðjudegi fyrir Þjóðhátíð, en þá er brennan vírbundin.

Koma margir að hleðslunni í ár? Einhverjir þekktir kappar þar á ferð?

Það er meistaraflokkur og 2.flokkur karla ÍBV í handbolta sem sér um brennuna og hefur gert í mörg ár. Við fáum einnig nokkra jaxla til að aðstoða okkur, það er ómetanlegt.

Eru einhverjir þekkir kappar þar á ferð?

Þekktir??? Það að vera brennumaður er ávísun á frægð, þannig að við erum allir þekktir!

Ert þú „aðal“ maðurinn í hleðslunni í ár?

Klárlega!

Er brennan aðalatriðið á Þjóðhátíðum, merkilegri en t.d. brekkusöngur og flugeldasýning?

Asnaleg spurning. En fyrir þá sem ekki vita, var brennan kosin flottasta atriði útihátíða í heiminum á heimasíðunni www.worldoutdoorfest.com

Hver er lykilinn að góðri brennu?

Eldspýtur!

Nær brennan alveg upp í topp í ár eins og hjá Sigga Reim forðum daga?

Það er ekkert sem toppar brennurnar hans Sigga Reim.

Eitthvað að lokum?

Bara minna Finnboga brennukóng að fara að sækja um leyfið, hef heyrt að Sýsli ætli að verða erfiður þetta árið.

Deila á facebook