-ein mesta bókun frá upphafi Herjólfs!
Gríðarleg viðbrögð hafa verið við bókunum í Herjólf fyrir Þjóðhátíð. Þegar fréttaritari hringdi núna áðan þá kom í ljós að fullt er í skipið frá Þorlákshöfn föstudaginn 4.ágúst og aðeins 2 sæti laus mánudaginn 7.ágúst frá Eyjum. Sem sagt, pakkað í Herjólf!!
Vonlaust er að panta fyrir bíla því það er löngu uppselt og allir miðar greiddir. Því er eini möguleikinn að komast með bíl að vera í heila viku með bílinn. Einnig er fólki bent á að ekki er lengur hægt að panta nema greiða strax fyrir miðann. Hægt er að gefa upp VISA kortið, greiða með heimabanka eða fara á næstu afgreiðslu Eimskips og klára málin þar.
Eftirfarandi bókanir fengust uppgefnar hjá afgreiðslu Herjólfs:
Fimmtudagur (frá Þorlákshöfn)
12:00
1 pláss laust
19:30
Fullt!
2:30
1/2 skip laust(um 275 manns)
Föstudagur (frá Þorlákshöfn)
Fullt í báðar ferðir(allar ferðir greiddar)
Mánudagur (frá Eyjum)
11:00
Fullt!
18:00
Fullt!
01:00
1 pláss laust
Þriðjudagur
8:15
Fullt!
16:00
2 pláss laus
11:00
275 ca laus