Búningakeppnin mjög hörð í ár

 

-þotuliði vann í fyrra samkv. heimildum

Gríðarlega hörð barátta er á hverju ári um hvaða hópur ber flottustu búninga inn í dal á föstudeginum. Fyrir kl 21:00 þurfa hóparnir að hafa komið inní dal til þess að dómnefnd geti barið keppendur augum og dæmt til sigurs strax um kvöldið á verðlaunaafhendingunni sjálfri.

Samkvæmt heimildum vann Þotuliðið í fyrra með gríðarlega flottum flugstjórabúningum sem mikil vinna hefur legið í vikum fyrir Þjóðhátíð.

Gamlar klíkur eins og Mafía Vestmannaeyja, Tígrarnir, Þotuliðið, Lonly blue boys, Kokkarnir, ladies og margar fleiri hafa litið dagsins ljós.

Ef e-h á ljósmyndir af þessum klíkum eru þau meira en mikið beðin um að koma þeim á okkur.

Deila á facebook