Bókanir í flug að komast á fullt

 

Nú þegar allt er að fyllast í Herjólf, hafa bókanir í flug tekið kipp. Rúmlega 450 manns eru nú þegar búnir að bóka hjá Flugfélagi Vestmannaeyja og hjá Landsflugi er orðið fullt í níu vélar Fimmtudag og Föstudag.

Það er því um að gera fyrir fólk að fara að tryggja sér far til Eyja á flottustu útihátíð Evrópu. Rétt er að geta þess að enn er eitthvað laust í næturferð Herjólfs aðfara nótt Föstudags.

Deila á facebook