Þjóðhátíðarlagið frumflutt á Bylgjunni kl: 11.00 í fyrramálið

 

Það fer í loftið klukkan 11.00 í fyrramálið þjóðhátíðarlagið 2006. Lagið heitir "Ástfangin í þér" og er lag og texti eftir Magnús Eiríksson. Flytjandi er ung söngkona sem heitir Hrund Ósk. Útsetningin er eftir Mattías Stefánsson fiðlusnilling, einnig kom Magnús Eiríksson að útsetningunni.

Matti Stefáns spilar á öll hljóðfæri í laginu ef frá eru taldar trommurnar en á þær spilar Magnús, sonur Magnúsar Eiríkssonar lagahöfundar. Við skellum svo laginu inná dalurinn.is á morgunn. En um að gera að stilla á Bylgjuna klukkan 11 í fyrramálið.

Deila á facebook