-brúin komin inn eftir
Vinnan í dalnum er nú komin á fullt. Sjálfboðaliðar mæta nú hver af öðrum inn í dal til að aðstoða við uppbyggingu á mannvirkjum, málun, tengingum, og teikningu á útveggi. Brúin var í málningu í gær þegar fréttaritari var á ferðinni. Verið var að vinna í stóra sviðinu sem ásamt öðru. Haft var eftir einum af köllunum í litla pallinum að þeir væru alltaf lang fyrstir og auðvitað flottasta mannvirkið. Lokahönd er verið að setja á litla sviðið en frumvinna er í flestu öðru. Verkið vinnst hratt þegar menn mæta á svæðið og gríðarleg stemning myndast í þessari og næstu viku.