-aðeins 29 síður meira skoðaðar á Íslandi
Það er óhætt að segja að spennan sé farin að magnast fyrir hátiðina miklu. Gríðarleg traffík hefur verið á síðuna að undanförnu sem endurspeglar verulegan áhuga á öllu sem viðkemur undirbúningi og upplýsingum um Þjóðhátíðina.
Það sem af er þessum mánuði hafa 44.415 innlit verið á síðunni og 164.350 síðuflettingar litið dagsins ljós. Þessar upplýsingar eru teknar af Modernus sem rekur teljari.is. Miðað við þessar tölur og röðun Modernus er Dalurinn þrítugasta mest skoðaða síða landsins ef tölur síðustu viku eru skoðaðar. Samkvæmt þessu er deginum ljósara hversu öflugur miðill Dalurinn er og mikilvægt tæki til að koma fólki í réttu stemninguna.