Tjöldun og vitalagfæringar VKB í dag
Bræðrafélagið VKB er félag sem hefur verið við lýði síðan 1998, þeir státa sig af því að eiga heimsins stærsta Þjóðhátíðartjald og í fyrra tóku þeir við Vitanum fræga sem stendur við Dalsmynnið og vísar fólki veginn inn í Dalinn. Þegar nær dregr að Þjóðhátíð er venjan að Eyjamenn taki út hvítu tjöldin og athugi ástandið á þeim og þrífi þau ef þarf og þeir félagar í VKB eru þar alls ekki undanskildnir og tóku þeir út tjaldið sitt í dag og viðruðu það, myndir af því má sjá hérna.
Svo er það vitinn en það er eina mannvirkið sem er ekki ennþá komið niður í Dal og segja þeir bræður að það sé vegna þess að í fyrra þó fór vitinn illa þegar hann fauk á hliðina eftir Þjóðhátíð og þurfti því að vinna töluvert í honum til að gera hann kláran fyrir hátíðina. Í dag voru þei að dytta að honum og stefnan er að hann fari niður í Dal á morgun og að hann verði tilbúinn þá. Myndir af undirbúningi vitans má finna hérna.
Á morgun koma svo inn fleiri myndir af undirbúningi niðrí Dal.