Fólk farið að týnast til Eyja

 

-Húkkaraballið er forskot á sæluna

Á fimmtudagskvöldið verður haldið húkkaraball í Týsheimilinu en það er upphitun fyrir sjálfa hátíðina. Hljómsveitin Stuðmenn munu leika fyrir dansi og koma fólki í réttu stemninguna fyrir Þjóðhátíðína sem verður sett á föstudag.

Fólk er farið að týnast til Eyja og má sjá glöggt dæmi þess í verslunum og í miðbænum. Herjólfur flytur marga og þeir sem vilja einungis taka Herjólf verða því að fara þeim mun fyrr til Eyja til þess að komast þar sem allt er orðið upppantað á föstudag og nánast allt á fimmtudag.

Deila á facebook