-vitinn settur upp í dag
Vinnan í dalnum er í fullum gangi. Skýr mynd er farin að myndast og mannvirkin þjóta upp hver á eftir öðru. Fjöldi sjálfboðaliða koma inní dal á daginn jafnt sem kvöldin. Brennan er klár ásamt því sem brúin virðist vera klár að undanskyldum ljósunum sem koma ekki fyrr en 2 dögum fyrir setningu.
Stangir fyrir götur hvítu tjaldanna eru komnar ásamt því sem innrukkunarskúrar og gámar fyrir munavörslu eru að týnast inn. Hliðið er á leið upp en það gerist yfirleitt í síðustu vikunni.
Grindverkið um dalinn er sett upp í vikunni en það eru leikmenn meistaraflokks karla í fótbolta sem henda því upp ásamt sjálfboðaliðum.