Það er alltaf leiðinlegt að týna hlutum, sérstaklega verðmætum hlutum, því viljum við minna fólk á munavörsluna sem er opin allan sólahringinn og er staðsett beint á móti salernunum niðrí Herjólfdal.
Í munavörslunni er Og Vodafone einnig með hleðslutæki fyrir farsíma sem er nauðsynlegt svo fólk geti haft símann sinn klárann til að geta senda þeim óheppnu sem ekki koma á Þjóðhátíð myndir af hátíðinni og að sjálfsögðu láta mömmu vita af sér.