295 hvít tjöld í ár

 

- Þjóðhátíð í mjög góðu meðallagi

Eitt af sterkum einkennum Þjóðhátíðarinnar er tilkomumikil tjaldborg sem heimamenn reisa með hvítum stórum hústjöldum. Eyjamaðurinn Friðbjörn Ó. Valtýsson hefur í mörg ár haft þann siðinn á að telja hvítu tjöldin á Þjóðhátíð. Dalurinn.is setti sig í samband við Friðbjörn fyrr í dag og að hans sögn eru hvítu tjöldin 295 í ár. Árið 1986, sem löngum hefur verið talin stærsta Þjóðhátíðin til þessa, voru hvítu tjöldin 330 talsins. Það má því segja að hátíðin í ár sé í mjög góðu meðallagi.

Strax að afloknum brekkusöng hefur í mörg ár verið tendrað á fjölda blysa í brekkunni í Herjólfsdal. Þeir sem orðið hafa vitni að þeirri sjón segja að um magnað sjónarspil sé að ræða. Friðbjörn hefur síðan séð um blysin og segir hann að blysin verði 132 í ár - eitt fyrir hverja Þjóðhátíð sem haldin hefur verið.

Að sögn Friðbjörn verða blysin í ár til minningar um Runólf Gíslason frá Hvanneyri í Vestmannaeyjum, sem féll frá fyrir skömmu. Runólfur, sem féll frá langt um aldur fram, var mikill þjóðhátíðarmaður og tók í mörg ár þátt í undirbúningi hátíðarinnar. Það er því vel við hæfi að heiðra minningu Runólfs með þessum hætti.

Deila á facebook