Samgöngur ganga vel

 

-ferðir Herjólfs á áætlun

Töluvert brottfall hefur verið úr pöntunum með Herjólfi frá Eyjum og vel hefur gengið að koma fólki sem var á biðlista fyrir. Ástæðan er talin helst vera sú að fólk pantar og greiðir fyrir miða í skipið til að tryggja sig ef flug klikkar.

Flugsamgöngur hafa gengið mjög vel og voru kringum 24 ferðir hjá Landsflugi farnar í gær. Gríðarlegur fjöldi fór einnig í gegnum Flugfélag Vestmannaeyja og voru gestir Þjóðhátíðar þreyttir en glaðir þegar farið var heim á leið.

Von er á nokkrum myndum í vikunni ásamt því sem við munum gefa upp linka á heimasíður fólks sem var duglegt við ljósmyndatöku.

Deila á facebook